Lukas Marx

Dr. Lukas Marx nýr yfirvísindamaður Rastar

June 12, 2026

Dr. Lukas Marx, doktor í lífjarðefnahaffræði, hefur nú verið ráðinn í stöðu yfirvísindamanns hjá Röst. Hann kemur til Rastar með víðtæka reynslu af hafrannsóknum og áhrifum loftslagsbreytinga á vistkerfi hafsins. Rannsóknir hans hafa m.a. beinst að ferlum næringarefna og kolefnishringrás hafsins í því augnamiði að greina áhrif loftslagsbreytinga á lífríki og vistkerfi hafsins.

Röst sjávarrannsóknarsetur hefur ráðið Dr. Lukas Marx í stöðu yfirvísindamanns og hefur hann þegar hafið störf.

Dr. Lukas kemur til Rastar með víðtæka reynslu á fjölbreyttum sviðum haf- og loftslagsrannsókna. Rannsóknir hans hafa m.a. beinst að ferlum næringarefna og kolefnishringrás hafsins með það markmið að skilja áhrif loftslagsbreytinga á lífríki og vistkerfi hafsins. Áður en Lukas gekk til liðs við Röst starfaði hann hjá Woods Hole haffræðistofnuninni (WHOI) í Bandaríkjunum, einni virtustu hafrannsóknastofnun heims. Þar leiddi hann m.a. vísindalegt mat á umhverfisöryggi sjávarloftskiptarannsókna. 

Lukas er með doktorsgráðu í lífjarðefnahaffræði (e. Marine Biogeochemistry) frá háskólanum í Portsmouth í Bretlandi.

Sem yfirvísindamaður Rastar mun Dr. Lukas gegna lykilhlutverki í framtíðarrannsóknum Rastar og leiða þróun nýrra rannsóknaverkefna sem stuðla að auknum skilningi á hafinu, loftslaginu og þeim vistkerfum sem íslenskt samfélag byggir afkomu sína að stórum hluta á. Jafnframt mun hann stuðla að auknu rannsóknasamstarfi Rastar við aðila bæði á Íslandi og á alþjóðavísu.

Lukas hefur þegar lagt sitt af mörkum til uppbyggingar þekkingar á sínu sérsviði á Íslandi. Í mars sl. var hann einn af skipuleggjendum og leiðbeinendum vinnustofu um súrnun sjávar og loftslagsbreytingar (Ocean Acidification and Climate Workshop), sem haldin var í samstarfi við Hafrannsóknastofnun. Með komu hans til Íslands styrkist uppbygging sérfræðiþekkingar á þessu mikilvæga rannsóknasviði.

“Það er mikill fengur að fá reynslumikinn sérfræðing eins og Dr. Lukas til þess að ganga til liðs við okkur en hann kemur úr teymi vísindamanna í fremstu röð í hafrannsóknum. Hann er mikilvæg viðbót við vísindalega þekkingu okkar sem snúa að samspili hafs og loftslags og kemur með einstaka reynslu af rannsóknum við raunverulegar aðstæður á hafi úti. Þekking hans og reynsla mun styrkja verulega getu Rastar og Íslands til að auka skilning á ástandi sjávar og lífríki þess. Við viljum sjá að ákvarðanir um hafið séu teknar á sterkum vísindalegum grunni og Dr. Lukas verður mikilvægur hlekkur í því að rannsóknir okkar getið stuðlað að því.“ segir Birkir Bárðarson, forstöðumaður hjá Röst.

Sjálfur segist Lukas ánægður með að flytja til Íslands og hefja nýjan kafla.

„Ég er afar spenntur fyrir því að flytja til Íslands og ganga til liðs við öflugt rannsóknateymi hjá Röst. Ísland er einstakur vettvangur fyrir hafrannsóknir og ég hlakka til að taka þátt í rannsóknum sem auka skilning okkar á hafinu, lífríki þess og samspili við loftslagsbreytingar. Jafnframt hlakka ég til að leggja mitt af mörkum til uppbyggingar þekkingar og samstarfs á þessu sviði hér á landi,“ segir Lukas.

Við bjóðum Lukas hjartanlega velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins á komandi árum! 

Hér má sjá frétt um ráðningu Dr. Lukas Marx: https://www.mbl.is/200milur/frettir/2026/06/11/marx_nyr_yfirvisindamadur_rastar/