
Röst sjávarrannsóknarsetur hefur ráðið Karen Björk Eyþórsdóttur sem þróunar- og verkefnastjóra. Hún hefur víðtæka reynslu af loftslags- og sjálfbærnimálum frá störfum hjá Transition Labs, forsætisráðuneytinu og Reykjavíkurborg. Karen mun leiða framkvæmd rannsókna, styðja við stefnumótun og miðla rannsóknaniðurstöðum, m.a. um samspil hafs og loftslagsbreytinga.
Röst sjávarrannsóknarsetur hefur ráðið Karen Björk Eyþórsdóttur, sérfræðing í viðskipta- og þjónustustjórnun, í stöðu þróunar- og verkefnastjóra og hefur hún þegar hafið störf.
Karen Björk kemur til starfa með víðtæka og verðmæta reynslu á sviði loftslags- og sjálfbærnimála. Hún starfaði síðast sem verkefnastjóri hjá fyrirtækinu Transition Labs, þar sem hún sinnti fjölbreyttum verkefnum á sviði loftslagstengdrar tækniþróunar. Síðustu mánuði hefur hún stutt við verkefni Rastar en hefur nú verið ráðin sem starfskraftur.
Áður starfaði Karen Björk í forsætisráðuneytinu fyrir samstarfsvettvanginn Sjálfbært Ísland, þar sem hún vann að mótun fyrstu landsstefnu Íslands um sjálfbæra þróun og sá um gerð og kynningu sjálfbærniskýrslu Íslands í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Einnig vann hún að uppfærslu aðgerðaáætlunar stjórnvalda í loftslagsmálum. Þar áður starfaði hún hjá Reykjavíkurborg á sviði loftslags- og sjálfbærnimála.
Karen Björk er með B.Sc.- gráðu í viðskiptafræði og þjónustustjórnun frá Copenhagen Business School í Kaupmannahöfn og starfaði þar samhliða námi hjá skrifstofu viðskiptaháskólans um sjálfbæra viðskiptahætti.
Birkir Bárðarson, forstöðumaður hjá Röst:
„Við erum afar ánægð að fá Karen Björk til liðs við okkur. Hún býr yfir viðamikilli reynslu á sviði umhverfis- og loftslagsmála og djúpum skilningi á stefnumótun og samstarfi milli ólíkra hagaðila. Sú þekking mun nýtast okkur vel við uppbyggingu og eflingu hafrannsókna á Íslandi og gera okkur kleift að gera rannsóknaniðurstöður aðgengilegri og gagnlegri fyrir samfélagið. Hjá okkur mun Karen halda utan um framkvæmd rannsókna og styðja við þróun og stefnumótun félagsins. Karen mun jafnframt gegna lykilhlutverki í því að miðla niðurstöðum rannsókna okkar, m.a. á samspili hafs og loftslagsbreytinga sem er brýnt verkefni bæði til skemmri og lengri tíma.“
Við bjóðum Karen Björk hjartanlega velkomna til starfa!