.png)
Opnir umræðufundir verða haldnir í Kjósarhreppi og Hvalfjarðarsveit í lok septembermánaðar til þess að eiga samtal við íbúa og nærsamfélag um fyrirhugaða sjávarloftskiptarannsókn í Hvalfirði og aðrar rannsóknarhugmyndir á svæðinu. Röst sjávarrannsóknasetur undirbýr nú vettvangsrannsókn á samspili hafs og loftslags með tilliti til upptöku koldíoxíðs og vill eiga opið samtal um útfærslu hennar í samráði við samfélagið.
Röst sjávarrannsóknasetur býður til opinna umræðufunda og samtals um hafrannsóknir og rannsóknarhugmyndir í Hvalfirði.
28. September 2026 í Félagsgarði (Dreng), Kjósarhreppi kl. 19:30
30. September 2026 í Miðgarði, Hvalfjarðarsveit kl. 19:30
Mikil losun koldíoxíðs í andrúmsloftið af mannavöldum hefur áhrif á loftslag, súrnun sjávar og veltihringrás Atlantshafsins (AMOC). Alþjóðastofnanir kalla eftir því að draga úr losun og binda það sem losað hefur verið. Margar aðferðir til að binda koldíoxíð í hafi er verið að rannsaka og aukin sjávarloftskipti, eða aukin basavirkni sjávar (e. Ocean Alkalinity Enhancement, OAE) er ein þeirra. Framtíðarákvarðanir alþjóðlega vísindasamfélagsins og löggjafa um mögulega beitingu sjávarloftskiptaaðferðarinnar sem kolefnisbindingu þurfa að vera byggðar á vísindalegri þekkingu, sem kallar á rannsóknir.
Vettvangsrannsókn á þessu samspili hafs og loftslags er nú í undirbúningi í þeim tilgangi að meta flutning koldíoxíðs úr andrúmslofti í sjó þegar útþynntri basískri vatnslausn er blandað við yfirborðssjó við stýrðar aðstæður. Aðferðin er talin hafa jákvæð áhrif á loftslag og gefa mótvægi við súrnun sjávar.
Hér má lesa nánar um sjávarloftskiptarannsóknina.
Birkir Bárðarson, forstöðumaður Rastar, kynnir fyrri og fyrirhugaðar rannsóknir og rannsóknahugmyndir setursins og fer m.a. yfir það hvers vegna sjávarloftskiptarannsóknin er gerð, hvað verði mælt og vaktað og hvað hafi breyst í rannsóknaráætluninni eftir athugasemdir frá nærsamfélagi.
Röst vill framkvæma rannsóknina í góðu samtali við nærsamfélag og eiga um hana opið samtal - öll eru velkomin.
Húsið opnar kl 19:00, fundirnir hefjast kl 19:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.
Við hlökkum til að sjá sem flest.
.png)