Röst á stærstu hafvísindaráðstefnu heims - ákall um auknar rannsóknir um sjávarloftskipti
12. mars 2026 - kl. 17:58

Stærsta hafvísindaráðstefna heims, Ocean Sciences Meeting, átti sér stað í Glasgow, Skotlandi, nú í febrúar. Meðlimir Rastar sjávarrannsóknaseturs sóttu ráðstefnuna ásamt fjölda samstarfsaðila. Þar komu saman yfir 6000 vísindamenn, rannsakendur og aðrir haftengdir aðilar frá öllum heimshornum. Markmið ráðstefnunnar var að efla tengsl og samstarf og miðla nýjustu hafvísindum til þess fjölbreytta samfélags sem koma að málefnum hafsins.


Á dögunum hélt Röst sjávarrannsóknasetur til Glasgow í Skotlandi, ásamt alþjóðlegum og innlendum samstarfsaðilum til þess að sækja stærstu alþjóðlegu hafvísindaráðstefnu heims, Ocean Sciences Meeting (OSM). Þar komu saman þúsundir vísindamanna, stefnumótenda og sérfræðinga á sviði hafrannsókna.

Á ráðstefnunni voru kynntar nýjustu rannsóknir á hafstraumum, vistkerfum sjávar, loftslagsbreytingum og nýrri tækni til hafrannsókna. Fjöldi fyrirlestra, vinnustofa og umræðufunda lagði áherslu á mikilvægi samstarfs milli vísindamanna, stjórnvalda, atvinnulífs og samfélags til að takast á við áskoranir tengdar hafinu.

Sérstök áhersla var lögð á hlutverk hafsins í loftslagsmálum, þar á meðal kolefnisbindingu, vöktunarkerfi fyrir hafið, tækninýjungar tengdar sjálfvirkni og þróun spálíkana. Áberandi viðfangsefni á ráðstefnunni var ákall vísindasamfélagsins um auknar rannsóknir á svokölluðum sjávarloftskiptum, eða árangri þess að auka basavirkni sjávar til þess að stemma stigum við loftslagsbreytingum í hafi. Ráðstefnan tengist einnig Áratug hafvísinda Sameinuðu þjóðanna (2021–2030) og undirstrikar mikilvægi alþjóðlegs samstarfs til að auka skilning á hafinu og stuðla að sjálfbærri nýtingu þess.

Nýr starfsmaður Rastar Dr. Lukas Marx kynnti vistfræðilega mælikvarða í tengslum við sjávarloftiskipti en hann var meðhöfundur á samtals sex erindum sem öll tengjast rannsóknum á sjávarloftskiptum koldíoxíðs með tilliti til vistkerfis og samfélags.

Meðlimir ráðgjafaráðs Rastar sóttu einnig ráðstefnuna en þar flutti Dr. Angel Ruiz Angulo, dósent og hafeðlisfræðingur við Háskóla Íslands, t.d. erindi um nýjar rannsóknir á flæði sjávar yfir hrygginn á milli Íslands og Færeyja, þ.m.t. á hitabreytingum í hafinu. Þá kynnti Sólveig Rósa Ólafsdóttir, hafefnafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, langtímarannsóknir á lífjarðefnafræði í hafinu við Ísland og súrnun sjávar. Einnig fluttu samstarfsfólk okkar, Dr. Lennart Gerke, David Ho og Ulla Heede frá [C] Cworthy rannsóknateyminu og Háskólanum í Hawaii erindi sem fjallaði um mikilvægi þess að kortleggja vel áhrif vinds og staðbundinna sjávarstrauma á sjávarloftskipti þegar stefnt er að nákvæmu mati á loftskiptum koldíoxíðs inn á fjörðum. Erindið byggir á rannsóknum Rastar í Hvalfirði undanfarin tvö ár. Þá voru öll þau vísindateymi sem eru samstarfsaðilar Rastar í hafrannsóknum virkir og/eða leiðandi þátttakendur í ráðstefnunni. 

Meðlimir Rastar ásamt fjölda samstarfsaðila.

Sólrún Sigurgeirsdóttir frá Hafrannsóknastofnun kynnir niðurstöður MSc. verkefnis síns við Háskóla Íslands sem unnið var á stofnuninni.