
Hafrannsóknafar Rastar til sýnis á Sjómannadaginn 2026
Röst sjávarrannsóknasetur tók þátt í hátíðarhöldum Sjómannadagsins í Reykjavík og á Akranesi þar sem gestir og gangandi voru kynntir fyrir starfsemi setursins og fjölbreyttum búnaði til hafrannsókna. Var þetta í fyrsta sinn sem gestum gafst tækifæri til þess að skoða sjálfstýrða hafrannsóknafarið Súlu, sem gerir það mögulegt að safna gögnum á grunnsævi og í fjörðum með lágmarks umhverfisraski. Einnig voru sýndir mælar fyrir seltu, hitastig, dýpt, magn koldíoxíðs í hafinu og sýrustig sjávar. Viðburðurinn skapaði vettvang fyrir fræðslu og samtal um mikilvægi hafrannsókna og vöktunar á ástandi hafsins á Íslandi.
Röst sjávarrannsóknasetur tók þátt í hátíðarhöldum Sjómannadagsins á Reykjavíkurhöfn og á Akranesi þar sem hin ýmsu hafrannsóknatæki félagsins voru til sýnis. Starfsfólk Rastar ræddi þar við gesti og gangandi um hafrannsóknir á Íslandi og sýndi þann nýstárlega tækjabúnað sem Röst notar við rannsóknir. Meðal annars var þar hátæknihafrannsóknafarið Súla sem markar tímamót í íslenskum hafrannsóknum, þar sem hún er sjálfstýrð og hönnuð til þess að lágmarka rask á umhverfinu við gagnasöfnun. Þar að auki kemst Súla inn á grynnri strandsvæði og í firði til þess að safna gögnum um ástand sjávar, sem er sérlega mikilvægt á Íslandi þar sem slík svæði hafa verið minna rannsökuð því hefðbundin stór rannsóknaskip hafa takmarkaða möguleika á að komast á slík grunn svæði.
Hér smá sjá myndviðtal við starfsfólk Rastar í Sjómannadagsblaðinu.


Meðal annars voru seltu-, hita- og dýptarmælar til sýnis í hinum ýmsu stærðum og gerðum, koldíoxíðsskynjarar (pCO2) til að mæla magn koldíoxíðs við yfirborð hafsins og mælar fyrir sýrustig sem geta veitt gögn um efnafræði hafsins.

Röst þakkar kærlega fyrir góð samtöl og ánægjulegar stundir á Sjómannadaginn, bæði við Fiskmarkað Íslands Faxabraut 5, Akranesi og á Grandagarði við Reykjavíkurhöfn - við sjáumst að ári!